fólk
maí 31, 2004
fólk getur verið svo sjálfmiðað, allt snýst í kringum það, og það sér ekkert nema svart og hvítt og sér í hag. ekki það að allir eru víst á einvhern hátt sjálfmiðaðir, það fer bara í taugarnar á mér þegar fólk hefur mann “all figured out”. sem það hefur ekki………. það veit ÉG fyrir víst.
mikið vildi ég að það væri svona dagur þar sem fólk gæti reynt að hætta velta sér uppúr sjálfum sér og leggja sleggjudóma á aðra og orð þeirra. þá væri það eins og tilfinningin þegar manni léttir eins og þegar manni er brugðið enn kemst svo að því að það var ekkert.
það sést bara best á því þegar fólki gengur vel, þá erallt svo gaman og líka hjá mér að sjálfsögðu, en fólk gleymir stundum að hugsa um mann. eða bara um einvhern yfirhöfuð. já þetta var pæling dagsins.
að öðru það er fokking Korn í kvöld og ef það er einhver þarna úti sem vill koma með mér og rán í smá upphitun og bjór (rán er reyndar ódrykkjumanneskja) heima hjá henni endilega hafið samband. ég er að vinna til 4 en hey, þetta byrjarekki fyrr enn 7.
ég verð samt að segja eitt í lokin, mér þykir vænt um vini mína og í kjölfar þessarar pælingar hér að ofan skal ég reyna að minnka sjálfmiðunina hjá mér. það verður verkefni sumarsins. annars bara KORN Í KVÖLD ÚJE ÚJE ÚJE!!!!!!!!
undirskriftar listar
maí 30, 2004
ekki það að ráðamenn þjóðarinnar nenni einu sinni að taka tillit til undirskrifta…. en hér eru tveir mikilvægir að mínu mati:og http://undirskrift.arnists.com
er hægt að sofa standandi eins og hestar gera?
óreglusvefn.is
maí 30, 2004
sko ég er bara EKKI AÐ HÖNDLA ÞETTA. er búin að vera á næturvöktum alla vikuna vaknaði klukkan 5 á föstudag og átti svo að mæta á 12 tima vaktirnar mínar þessa helgi frá 8 á morgnana til 8 á kvöldin. mætti á réttum tíma á laugardag…….helvíti erfið vakt og ég nær svefnlaus. ekki gekk það betur í nótt,því einhverHELVÍTIS BREIMANDI KÖTTUR fyrir utan gluggann minn svaf samtals svona 2-3 tíma vegna óreglu svefns og viðbjóðar. mætti hálftíma of seint í vinnuna við lítin fögnuð viðstaddra og þarf að elda hátíðarmat í kvöld. fyrir utan það er vaksurinn hér í eldhúsinu stíflaður svo og ég er að hrynja í gólfið vegna vansveftu …….. blóm og kransar eru afþakkaðir…. úff svo aftur 8-8 á morgun svo beint á korn……….. hvar endar þetta ……
ása svefngegnill
pabbi minn er snillingur!
maí 28, 2004
pabbi minn og ég erum búin að sitja í allt kvöld að skoða og hlusta á plötusafnið hans. ég segi það ekki oft enn PABBI MINN ER SNILLINGUR! BÍTLARNIR OG MÖTLEY CREW MAN!
PABBI ÉG ELSKA ÞIG!
hva hann gæti alveg verið að lesa þetta þó svo ég efist um það!
fúlt
maí 27, 2004
já nú erum við komnar með trommara, og æfingarhúsnæði, enn þá allt í einu bailar gítarleikarinn! hvað er málið?
hristu á þér rassin og hér kemur bassinn hehe ef einvher þarna úti veit um einvhern snilling látiði mig þá vita krúttí pútt. annars neyðist ég að hafa 17 ára bróðir minn…….
vá
maí 24, 2004
hvað ég hata vinnuna……. eða ég bara nenni essu ekki….. er á fysta klukkutíma fyrstu 16 tíma vaktarinnar… og ég er að deyja….. langar bara út í fótbolta! eða brennó!
veit ekkert um rapp hip hop eða neitt og setti inn fáránlega færslu á huga í gær, hehe þetta er svo fyndið! til að stuða rapp fólkið hehehehe http://www.hugi.is/hiphop/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=1666905&iBoardID=219
hæmm
maí 20, 2004
rán vildi meira blogg og hér kemur það:)
ég gerði mér grein fyrir því í gær að einn vinur minn er ekki vinur minn. beygla dauðans! mannalæti og ógeðslegheit eru ekki minn tebolli! kann ekki að meta slíkt!
að öðru, Á EINHVER BÍLSKÚR? SEM VILL LEIGJA?
bráðvantar bilskúr á leigu eða bara eitthvað shitti pínu húsnæði, its an emergengy people! ef þið þekkjið einvhern eða bara eigið bílskúr og viljið þéna pínu pening á mánuði, HAFIÐI SAMBAND Á asaba@hi.is
annars er það að frétta af mér að þegar ég blogga, þá blogga ég í vinnuni,hehe og það er lítið að frétta héðan, nema það er búið að ráða mig sem skemmtanastjóra í afmælisveislu hér á laugardaginn. vúhje
annars þá er að koma sumar og vil ég bara segja að ég elska ykkur lömbin mín:) líka einhvern atómstöðvar náunga sem kommentaði hér að neðan (þó svo að hljómsveitin þín mætti gera betur, allavega söngvaralega séð hehe)
svo vill ég koma á framfæri þökkum til emils, takk fyrir að vera svona mikill snillingur á gítar og bjarga aðal future gítarleikaranum okkar frá glötun.
ása
hehehehe
maí 17, 2004
ég fór að hugsa hvað mér finnst fyndið þegar rán er einbeitt.
eins og einu sinni var hún mjög einbeitt á það að hlusta á mig, og um leið að koma heilli stórri langloku uppí sig í einu, og þegar það komst ekki meira, notaði hún hnífapör á að troða í sig, enn samt með alla einbeitninguna á mig.
og eins og þegar hún er að gera eitthvað eins og að klippa, mjög einbeitt og hlustaði samt á mig segja söguna af því þegar ég þvoði mér um hendurnar með tannkremi, hún var það einbeitt á það að klippa, að það varð aukaatriði.
og eins og þegar hún er einbeitt að dansa við mig við maus, þegar við gerum “fingur fyrir augunn” dansinn það er sko einbeitning í lagi!!!!!!!
hehehehehehe nei var bara að hugsa……..
er ég eina manneskjan á Íslandi sem
maí 17, 2004
sá ekki eurovision? ég var SOFANDI muhahahahaha, (náði þó að horfa á smá popppunkt! jess atómstöðin datt út!)
ása lasnipési.