H
janúar 23, 2007
HELVÍTIST NÆTURVAKTIRNAR
gat ekkert sofið í nótt og er enn drulluþreytt. á eftir að gera allllt í dag, eini frídagurinn minn.
ég og gebba erum að fara heimsækja ástu, nýju íbúðina hennar og an actual mac núna í fyrramálið! íhá! getur einhver fundið svona “to do ” dæmi á netinu fyrir mig? er grapevine dana ekki til á tölvutækuformi?
allavega til hamingju með afmælið hlíf ég sem samdi frumsamið ljóð.
útskrift í feb
köben núna
leave all your worries behind.. maður þarf víst að slaka aðeins á líka;)
EIRÍKSGATAN REUNATED co
Frænka mín er æðisleg. við fórum í göngutúr saman …
janúar 7, 2007
þreytt
janúar 7, 2007
er þreytt er þreytt á vinnu og lærdómi.
Komið með uppástungur hvað ég á að fara gera eftir útskrift.
ása þreyttipési
RAPPORT
janúar 2, 2007
Ok núna ætla ég að segja ykkur frá jólum og áramótum, snúðarnir mínir. First of all, þá keypti ég mér nýja töff myndavél. Um þessar mundir er ég að skrifa b.a. ritgerðina mína svo ég hugsa ég fari í eitthvað ljósmyndatengt eftir hana, en það kemur allt í ljós. Einnig er ég að hugsa um að fresta áframhaldandi masternámi til haustins. Allavega here it goes…:
JÓLIN
Já litla frænka mín kom í heimsókn. Hún kom líka með hundinn sinn Skugga. Henni fannst myndavélin afar spennandi og vildi endilega aka myndir á hana. Allar myndirnar voru soldið svona, skornar á vitlausum stað en mér fannt það bara krúttlegt. Hlakka til að fá aðra svona stelpu eins og hana, hún er svo yndislega eins og systir hennar og foreldrar. Við Píurnar héldum okkar árlega jólaboð. Það vantaði bara 1-2 en þetta var reglulega skemmtilegt hjá okkur. Við hétum því að meika alltaf tíma einu sinni á ári í framtíðinni. Mér þykir super vænt um ykkur allar.
Þetta er dæmi af myndatöku frænku minnar. Hún er samt alveg á réttri leið, að taka mynd af fólkinu sem henni finnst áhugavert.
Hérna er sætasti hundur í heimi, Skuggi.
ÁRAMÓTIN
Áramótin voru bæði góð og slæm. Ég drakk of mikið þau skipti sem ég fór út, en var að vinna eh líka. Skaupið var svona lala, og fannst mér ógeðslega skrýtið að hugsa til þess að það væri komið árið 2007, og hvernig allt er. Mér þykir samt gaman að vera með fólkinu mínu á þessum tímamótum.

Bróðir minn sýndi snilldartakta með stjörnuljósin með rauðan himinnn af sprengjuæði íslendinga. Ég komst að því þetta kvöld að lífið snýst ekki um djammið, enda verður það af skornum skammti árið 2007 hjá mér.
Ég og Gebba ætlum örugglega að heimsækja ástulíus á þessu ári sem og mig langar að ferðast eh meira. Hvað gerist svo er allavega óráðið, en mig vantar íbúð, meira nám, starf og ferðalög inn í mína framtíð. Ég vil þakka öllum sem ég þekki fyrir að vera til, og vil að allir njóti lífsins til hins ýtrasta. Takk allir, fyrir að vera til.



