þreytt
maí 15, 2007
ég er svo þreytt ég gæti bara öskrað. þreytt þreytt og verð þreyttari með mínótunni… úf er búni að vera ofurþreytt í 4 daga. þreyyyyyyyyyyyytttt. zzzzzzzzzzzzzzzzz
Það er ekki fögur framtíðarsýn að fórna náttúrverðmætum landsins fyrir mengandi stóriðju. Og það á sama tíma og mannskeppnan er í kreppu varðandi vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og afleiðingum þessa. Er þá í lagi að ósnortinni náttúru sé fórnað fyrir uppistöðulón þegar áherslan í markaðssetningu gengur út á hreinleika lands og landbúnaðarafurða?
Kyoto-bókunin sem Íslendingar samþykktu felur í sér minnkun á losun gróðurhúsaloftegunda. Það gefur augaleið að stóriðja sem byggðastefna eykur losunina. Ísland er búið að skuldbinda sig til að draga úr útblæstri á komandi árum og getur því ekki reitt sig á stóriðju sem byggðalausn til lengri tíma. Byggðarstefnan getur haft svo margar aðrar hugmyndir á bak við sig sem stjórnvöld hreinlega neita að leggja fjármagn til, svo sem eins og að auka menntun, efla nýsköpun, styrkja sprotafyrirtækin, koma upp rannsóknarsetrum, efla ferðamennsku og hlúa að fiskveiðum sem atvinnugrein (og leiðinni afnema gjörspillt kvótakerfið þar sem auðurinn leggst á hendur fárra og drepur byggðarlög, svipuð hugmyndafræði og sjálfstæðisflokkurinn er með í heild sinni á samfélagsgerð Íslendinga.) Eyðum ekki landi afkomenda okkar og forfeðra. Verndum menningarverðmætin, uppsprettu ljóða-lista og sagnarfs Íslendinga. Ómengað land er auðlind framtíðarinnar.
Finna til að vinna- það er ekkert minna!
maí 10, 2007
Og þetta land komst áfram: http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/europe/country_profiles/1102477.stm jáhá! austur evrópu klóinn hefur víst komist áfram, hvernig væri þá að kjósa finna á laugardaginn og svo ef þeir vinna (með alveg töff lag, soldið evanicence slash svarkolluæðið í finnskum böndum eins og rasmus ofl) og hafa hópferð til Finnlands að ári!! hver er með??? annars væri ég til í að fara ferðast eitthvað kannski á næsta ári, einhverjir sem vilja joina mér? kv, Acið
Nýtt blogg
maí 7, 2007
þar sem gamla bloggið er ónýtt fékk mér nýtt blogg eftir að hafa séð frumspeki ástu fara á öld ljósvakans. ! enoy nú get ég loksins farið að tjá mig á næturvöktunum