Á vakandi nótunum
júlí 25, 2007
“its not jugoslavia at all”
Topp 10 – Lítt þekktir fróðleiksmolar um íslenska dægurlagatextasögu
10 Bjartmar Guðlaugsson samdi textann Sautjánda júní í rauninni þann fimmtánda mars.
9 Bubbi Morthens íhugaði í fyrstu að hafa textann í Fjöllin hafa vakað svona: Fjöllin hafa vakað í sirka sextán milljón aldir, en hætti við og endaði með Fjöllin hafa vakað í þúsund ár.
8 Lagið Ólsen ólsen með Sigurrós átti í upphafi að heita Veiðimaður.
7 Grýlurnar sömdu lagið Sísí upphaflega fyrir auglýsingu fyrir SÍS, samband íslenskra samvinnufélaga. Textinn átti meðal annars að vera: SÍS sér ykkur fyrir síldinni, aha aha.
6 Lagið Vöðvastæltur er eitt af frægari lögum Lands og sona. Þar má meðal annars heyra línuna: Lóðin hlaðast á mig, Og bráðum verð ég alveg eins og þú. Lagið varð fyrst til á ,,skynvillutímablinu” svokallaða hjá Landi og sonum og þá var textinn svona: Blómin ráðast á mig, þegar við áum við geitungabú.
5 Textinn við lagið um Þórð sjóara er byggður á Þórði Bláa, sem var fræg aflakló. Hann hafði þó þann leiða ávana að bora göt í þilför til að koma þar fram vilja sínum. Textalínan ,,Hann elskaði þilför hann Þórður” skírist af þessu.
4 Áður en Þorsteinn Eggertsson datt niður á snilldarþýðinguna sína á Return to sender, Þrjú tonn af sandi, hafði hann íhugað að kalla lagið Beikon í bandi.
3 Lagið Rúdolf með Þeysurum var í upphafi jólalag og hét Rúdolf með rauða nefið. Það átti að fara á jólaplötu Þeysara ,,Hó hó hó, sieg heil”, sem því miður var aldrei kláruð.
2 Bubbi Morthens fékk tilboð frá líkamsræktarstöð um að fá að nota lagið Hírósíma í auglýsingu. Breyta átti textanum í: þið munið öll, þið munið öll, þið munið öll, teyja… Því miður náðust ekki samningar um launakjör.
1 Þegar Indriði G Þorsteinsson samdi textann við lagið Vegir liggja til allra átta bjó hann í rauninni við blindgötu.
Dr. Gunni er snillingur.
vakandi á nóttunni
júlí 24, 2007
Hver á þennan blessaða hund, Lúkas?
London París Róm
júlí 6, 2007
Er búin að fara í noregsreisu, á blautt festival og grilla sel í skógi,sjá geðveikt marga góða tónleika, hitta frænda minn, Ingrid og Erik og afkvæmi þeirra, Oleu.. (ÓLE ÓLE ÓLE ÓLE ÓLE.. ÓLEAAA ÓLEAAA), kveðja Gebbu til Afganistan, hitta Hlíf af keldunni, missa af Erlu í Osló þar sem við vorum að rotna eftir festivalið í 2 tíma áður en við tjekkuðum okkur inn í skemmtiferðaskipið. Utanlandsferð nr 2 hjá Bjarna, ad hitta Heiðu og xhermannakærastann hennar, hitta Brynhildi og Björn og fara í mexícó matarboð, sitja á þaki í Tromsö og hitta kvikmyndagerðarmenn, söngvara í ska bandi og leikara, vera drukkin á daginn, sitja og skrifa, reyna ákveða skólamálin.
Þau eru höfuðverkur. Hvort verður það mastersnám í frétta og blaðamennsku, hagnýt menningarmiðlun, sjónmenning, gagnrýnin listfræði, listfræði eða þverfaglegt nám með 11 öðrum manneskjum með ólíkann bakgrunn? London, París, Róm? Tromsö, Köben, Helskinki? Eða verður það verklegt nám í myndlist í Bergen? Eða verður það kvikmyndaskóli Íslands.. leiklist.. handritagerð..? já já Ása þarf að velja eitthvað en veit ekki hvar. Langar að búa en ekki læra. Langar að læra en ekki búa. Á ólíkar hugmyndir um sambland af búsetu og námi.
Er núna í heimsókn hjá Ástunni og Halli. rosa er tilveran skemmtileg núna, samt lúin og óákveðin. Ég held ég fái mér bara bjór..
og Ó.. stay tuned ég mun sennilega fara strax í póstkortaverkefnið mitt þegar ég kem heim svo það er aldrei að vita að ég nái að senda á ykkur öll, nær og fjær, póstkort, póststimplað úr Kópavoginum;)