september 27, 2007

Hverjir ætla á Riff? Hverjir ætla á Airwaves?

Annars hver nennir í yoga með mér í kvöld?

Alþjóðavæðing

september 24, 2007

Eg veit varla annan sorglegri vott grunnfærrar hugsunar en þegar Íslendingar,

sem lítt hafa verið að heiman búnir og því fengið glýju í augun af erlendri

skólagöngu, setjast á dæmistól yfir íslenzkri þjóðmenningu með erlendan mælikvarða

í höndunum.

(Sigurður Nordal. Áfangar I, 1943, 236.)

Íslenskan hefur verið skrifuð kynslóð eftir kynslóð og því skiljum við ritmál forfeðra okkar sem lifðu annan menningarheim. Þetta eru ómetanleg tengsl milli kynslóða, móðurmálið er mönnum andlegt umhverfi og sá sem týnir því glatar hluta af uppruna sínum. Ekki tapa ykkur í mannalátunum. Stöndum vörð um íslenska tungu!

 

“nei, ég skammast mín ekkert fyrir að borða óhrært skyr, beint uppúr dollunni.”

 

Ég kveikti á kerti í dag

september 17, 2007

þið vitið hvað það þýðir! Ég get keypt mér geisladisk!!!