Ace

Ég er týnt lamb í skóginum á horninu á hárinu af fjallinu. hahaha. Ég hef tekið þátt í leiklist, spilað á píanó og verið í myndlistarskóla sem yngri manneskjan ég. En annars, búin að læra smá sagnfræði, listfræði og er að leyta mér að einhverju skemmtilegu námi í haust. Kannski master kannski eitthvað allt annað. Hef mikinn áhuga á ljósmyndun, tónlist, myndlist og nýsköpun. Mig langar að ferðast í framtíðinni, kaupa mér húsnæði og hafa það gaman. Hamingjan er fólgin innra með manni og því um að gera gera allt til þess að lifa þessu lífi sáttur. Ég hef áhyggjur af náttúrunni bæði hér heima og erlendis, áhyggjur af sjúkdómum og fátækt. En ég er einmitt pínku stresssjúklingur og reyni að lifa mínu lífi í takt við lífsgæðakapphlaupið. Og ó, ég er Ása það er víst bara til eitt eintak af mér, sumir kalla mig húmorista ég sjálf hef það oftast 100% skemmtilegt með sjálfri mér vegna eigin húmors. Góða skemmtun við að lesa rugli frá mér hérna í framtíðinni.

Skildu eftir svar