Bíddu
október 27, 2007
Er Ellý bara með krakkann sinn allstaðar? gmg hvað hún er halló! http://www.mbl.is/mm/svidsljos/sofaspjall.html?ss_id=7056
funny stuff
október 9, 2007
mér finnst eftirfarandi fyndið sem ég hef tekið eftir í vikunni:
-atli fannar-hver annar?
-Ása, ég keypti mér ás
annars er airwaves bráðum að koma. hlakka mega mega mega til. mega.
vá .. hlakka svo mikið til. mega.
Pabbi gaf mér rafmagnsrtrommukjuða sem eru snilld.
En svo er bara oktoberfest á föstudaginn og vísó, afmæli hjá sigruni á laugardaginn.. vinna laugardagskvöldið, og svo kemur airwaves. inn á milli ritgerðir, fréttaskýringa, framsögur og fleira skemmtilegt. ætla gerast bókhlöðupési. Langaði í heimsókn til ástunnar minnar en ég kemst ekki fyrir jól. Gebban okkar í afgó fékk séð&heyrt í pósti frá íslandi.
annars gaman að gleyma ekki vinum sínum! kvitta takk! þetta var það langt blogg!
hæ
september 27, 2007
Hverjir ætla á Riff? Hverjir ætla á Airwaves?
Annars hver nennir í yoga með mér í kvöld?
Alþjóðavæðing
september 24, 2007
Eg veit varla annan sorglegri vott grunnfærrar hugsunar en þegar Íslendingar,
sem lítt hafa verið að heiman búnir og því fengið glýju í augun af erlendri
skólagöngu, setjast á dæmistól yfir íslenzkri þjóðmenningu með erlendan mælikvarða
í höndunum.
(Sigurður Nordal. Áfangar I, 1943, 236.)
Íslenskan hefur verið skrifuð kynslóð eftir kynslóð og því skiljum við ritmál forfeðra okkar sem lifðu annan menningarheim. Þetta eru ómetanleg tengsl milli kynslóða, móðurmálið er mönnum andlegt umhverfi og sá sem týnir því glatar hluta af uppruna sínum. Ekki tapa ykkur í mannalátunum. Stöndum vörð um íslenska tungu!
“nei, ég skammast mín ekkert fyrir að borða óhrært skyr, beint uppúr dollunni.”
Ég kveikti á kerti í dag
september 17, 2007
þið vitið hvað það þýðir! Ég get keypt mér geisladisk!!!
Á vakandi nótunum
júlí 25, 2007
“its not jugoslavia at all”
Topp 10 – Lítt þekktir fróðleiksmolar um íslenska dægurlagatextasögu
10 Bjartmar Guðlaugsson samdi textann Sautjánda júní í rauninni þann fimmtánda mars.
9 Bubbi Morthens íhugaði í fyrstu að hafa textann í Fjöllin hafa vakað svona: Fjöllin hafa vakað í sirka sextán milljón aldir, en hætti við og endaði með Fjöllin hafa vakað í þúsund ár.
8 Lagið Ólsen ólsen með Sigurrós átti í upphafi að heita Veiðimaður.
7 Grýlurnar sömdu lagið Sísí upphaflega fyrir auglýsingu fyrir SÍS, samband íslenskra samvinnufélaga. Textinn átti meðal annars að vera: SÍS sér ykkur fyrir síldinni, aha aha.
6 Lagið Vöðvastæltur er eitt af frægari lögum Lands og sona. Þar má meðal annars heyra línuna: Lóðin hlaðast á mig, Og bráðum verð ég alveg eins og þú. Lagið varð fyrst til á ,,skynvillutímablinu” svokallaða hjá Landi og sonum og þá var textinn svona: Blómin ráðast á mig, þegar við áum við geitungabú.
5 Textinn við lagið um Þórð sjóara er byggður á Þórði Bláa, sem var fræg aflakló. Hann hafði þó þann leiða ávana að bora göt í þilför til að koma þar fram vilja sínum. Textalínan ,,Hann elskaði þilför hann Þórður” skírist af þessu.
4 Áður en Þorsteinn Eggertsson datt niður á snilldarþýðinguna sína á Return to sender, Þrjú tonn af sandi, hafði hann íhugað að kalla lagið Beikon í bandi.
3 Lagið Rúdolf með Þeysurum var í upphafi jólalag og hét Rúdolf með rauða nefið. Það átti að fara á jólaplötu Þeysara ,,Hó hó hó, sieg heil”, sem því miður var aldrei kláruð.
2 Bubbi Morthens fékk tilboð frá líkamsræktarstöð um að fá að nota lagið Hírósíma í auglýsingu. Breyta átti textanum í: þið munið öll, þið munið öll, þið munið öll, teyja… Því miður náðust ekki samningar um launakjör.
1 Þegar Indriði G Þorsteinsson samdi textann við lagið Vegir liggja til allra átta bjó hann í rauninni við blindgötu.
Dr. Gunni er snillingur.
vakandi á nóttunni
júlí 24, 2007
Hver á þennan blessaða hund, Lúkas?
London París Róm
júlí 6, 2007
Er búin að fara í noregsreisu, á blautt festival og grilla sel í skógi,sjá geðveikt marga góða tónleika, hitta frænda minn, Ingrid og Erik og afkvæmi þeirra, Oleu.. (ÓLE ÓLE ÓLE ÓLE ÓLE.. ÓLEAAA ÓLEAAA), kveðja Gebbu til Afganistan, hitta Hlíf af keldunni, missa af Erlu í Osló þar sem við vorum að rotna eftir festivalið í 2 tíma áður en við tjekkuðum okkur inn í skemmtiferðaskipið. Utanlandsferð nr 2 hjá Bjarna, ad hitta Heiðu og xhermannakærastann hennar, hitta Brynhildi og Björn og fara í mexícó matarboð, sitja á þaki í Tromsö og hitta kvikmyndagerðarmenn, söngvara í ska bandi og leikara, vera drukkin á daginn, sitja og skrifa, reyna ákveða skólamálin.
Þau eru höfuðverkur. Hvort verður það mastersnám í frétta og blaðamennsku, hagnýt menningarmiðlun, sjónmenning, gagnrýnin listfræði, listfræði eða þverfaglegt nám með 11 öðrum manneskjum með ólíkann bakgrunn? London, París, Róm? Tromsö, Köben, Helskinki? Eða verður það verklegt nám í myndlist í Bergen? Eða verður það kvikmyndaskóli Íslands.. leiklist.. handritagerð..? já já Ása þarf að velja eitthvað en veit ekki hvar. Langar að búa en ekki læra. Langar að læra en ekki búa. Á ólíkar hugmyndir um sambland af búsetu og námi.
Er núna í heimsókn hjá Ástunni og Halli. rosa er tilveran skemmtileg núna, samt lúin og óákveðin. Ég held ég fái mér bara bjór..
og Ó.. stay tuned ég mun sennilega fara strax í póstkortaverkefnið mitt þegar ég kem heim svo það er aldrei að vita að ég nái að senda á ykkur öll, nær og fjær, póstkort, póststimplað úr Kópavoginum;)
þreytt
maí 15, 2007
ég er svo þreytt ég gæti bara öskrað. þreytt þreytt og verð þreyttari með mínótunni… úf er búni að vera ofurþreytt í 4 daga. þreyyyyyyyyyyyytttt. zzzzzzzzzzzzzzzzz
Það er ekki fögur framtíðarsýn að fórna náttúrverðmætum landsins fyrir mengandi stóriðju. Og það á sama tíma og mannskeppnan er í kreppu varðandi vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og afleiðingum þessa. Er þá í lagi að ósnortinni náttúru sé fórnað fyrir uppistöðulón þegar áherslan í markaðssetningu gengur út á hreinleika lands og landbúnaðarafurða?
Kyoto-bókunin sem Íslendingar samþykktu felur í sér minnkun á losun gróðurhúsaloftegunda. Það gefur augaleið að stóriðja sem byggðastefna eykur losunina. Ísland er búið að skuldbinda sig til að draga úr útblæstri á komandi árum og getur því ekki reitt sig á stóriðju sem byggðalausn til lengri tíma. Byggðarstefnan getur haft svo margar aðrar hugmyndir á bak við sig sem stjórnvöld hreinlega neita að leggja fjármagn til, svo sem eins og að auka menntun, efla nýsköpun, styrkja sprotafyrirtækin, koma upp rannsóknarsetrum, efla ferðamennsku og hlúa að fiskveiðum sem atvinnugrein (og leiðinni afnema gjörspillt kvótakerfið þar sem auðurinn leggst á hendur fárra og drepur byggðarlög, svipuð hugmyndafræði og sjálfstæðisflokkurinn er með í heild sinni á samfélagsgerð Íslendinga.) Eyðum ekki landi afkomenda okkar og forfeðra. Verndum menningarverðmætin, uppsprettu ljóða-lista og sagnarfs Íslendinga. Ómengað land er auðlind framtíðarinnar.