ása lasnipési

júní 24, 2004

já það er satt! ég er viðbjóðslega kvefuð og með HITA! fer í nótt til köben svo er það abra keldan og hitta alla ! það verður svo gaman að hitta alla í köben! bara sólarhringur………

kveðja ása lasnipési

hálf öld

júní 16, 2004

mamma mín er 50 ára í dag. til hamingju! ekki það að hún lesi þetta! hún og allir hinir í fjölskyldunni fóru uppá kjöl að labba…. en ég ákvað að fara ekki sökum skóleysis og almenns óhressleika vegna þynnku. svo ég verð heima að taka húsið í gegn! ójá ……. þrífa allt húsið á einum degi vúha! svo bruna ég upp í bústað í afmælisveisluna í kvöld! svo er það bara mæta í vinnu klukkan 8 í fyrramálið og við tekur helgi dauðans þar sem ég verð á 1 16 tíma vakt og tveimur 12 tíma vöktum. ÓGEÐ. svo verður maður víst að senda allt gítardótið í viðgerð. ohh hvað ég þoli ekki fólk sem er sjálfmiðað nískt og leiðinlegt! sem getur ekki komið með sín eigin hljóðf…. sleppum þessu bara vúha!

nú er hljómsveitin komin með nýjan trommuleikara , nýjan gítarleikara og ætlar að fara skipta um húsnæði. eftirlifandi „upprunalegu“ meðlimirnir eru ég og árný híhí. og hef á tilfinningunni að nú geti maður farið að gera eitthvað af viti ekki undir fáránlegri pressu ópersónuleg heitum og kröfum annara. krakkar verða krakkar…….

að lokum vil ég þakka góða mætingu á austurvöll í gær! farin að þrífa…. ble ása

tónleikaumfjallanir

júní 11, 2004

Blur(3)

afhverju í andskotanum ég hef séð þessa hljómsveit 3svar sinnum hef ég ekki glóru en sá þá víst 2 svar í höllinni því ég mátti lítið hanga niðrí bæ á tónleikum ogsvo sá ég þá á keldunni. Hef alltaf verið mun meiri oasis fan, þeir eru geðveikir og ég skil ekki afhverju guð lét mig ekki fara þrisvar á þá í staðin fyrir blur. Park life og fótboltalagið ekki alveg að gera sig svona þegar til seinni tíma er litið.

Skunk Anansie (2)

já þau komu víst líka tvisvar hingað, sennilega vantað pening. Þetta er hörkuband og eiga þau nokkra þétta slagara, og maður á góðar gangsta minningar af röltinu á eyrarbakka mep skunk anansie í ghettoblasternum. „it is fucking political!“

Prodigy

massa massa svita tónleikar í höllinni og var þetta geðveikis tónlistin þess tíma sem unglingageðveikin mín náði hámarki. Prodigy hefur sér pláss í þessari tónlistarstefnu hjá mér og einvherra hluta vegna hugsa ég alltaf um stebba gel sem var með mér í bekk þegar minnst er á þetta rafræna kókanín massa bassa tónlist.smack my bitch up kom nokkru síðar eftir að hámarkinu var náð og þá hlustaði maður samviskusamlega á það í party á flúðum. (þar sem ég hef komist næst því að vera dauða en lífi af áfengisdrykkju)

Foo Fighters

höllin sumarið 2003 og voru allir slagararnir teknir. Ánægð með þessa tónleika, og fékk Grohl prik fyrir nilfisk ævintýrið sem gerði þá drengi fræga á stokkseyri og á suðurlandi nær í svona mánuð. Já run and tell all of the angels hef ekki hlustað mikið á þá, hef aldrei fílað þá alveg í æðar. En tónleikarnir voru góðir og þessi umfjöllun mín gengur einmitt út á það að dæma tónleikana sem slíka eins og áður hefur komið fram.

Violent femmes

þegar ég átti Heima útí köben þá var hringt í mig eitt mánudagskvöldið?..?það erum violent femmes tónleikar í næstu götu við þig, í amager hallen! Ég hljóp út 20 mín áður en þeir byrjuðu með bergdísi vini og það var ekki uppselt. Þeir tóku slagarana sína og önnur óþekkt en góð lög en voru afar slappir þreyttir og gamlir á þessum leikum kennum við tón.

Korn

í höllinni í síðustu viku. Með betri tónleikum sem ég hef farið á, krafturinn hljóðkerfið og bara lögin náðu að njóta sín til hins ýtrasta.fokking rokk og bara slam og bara röff bassi og bara elska korn. Var ég búin að segja „y´all wanna single say f*** that“.. ohhhhh crazy bara upplifun og bara geðveiki.

Fantômas

óvenjulegar metal pælingar og bara shit. Skringilegar keyrslur og bara geðveiki! En samt sem áður nokkuð nett og fyrrverandi trommarinn í Slayer örugglega orðin nett hellaður eftir sitt líf. Þeir hituðu upp fyrir Korn.

Queens of the Stone age (3)

tvisvar séð þá á keldunni og einu sinni á hulstfred. No one knows?.. mörg kúl lög og bassaleikarinn oft á tíðum annaðhvort nakinn eða hálfnakinn hehe.

Cure

BESTU TÓNLEIKAR LÍFS MÍNS. OG HANA NÚ. BARA ÞAÐ AÐ HAFA SÉÐ

ÞÁ GERIR LÍF MITT BETRA Í DAG. ROBERT SMITH VAR Á A -SVÆÐI FREMST OG BARA ÉG GET EKKI SAGT ANNAÐ EN ÉG ELSKA ÞÁ GET EKKI EINU SINNI LÍST TÓNLEIKUNUM SEM SLÍKUM HELDUR MAN ÉG VARLA EFTIR ÞEIM DATT ÚT ÚR HEIMINUM. ENDA HEFÐI ÞAÐ VARLA SKIPT MÁLI HVERNIG ÞEIR STÓÐU SIG. KELDAN 2001.

massive attack(2-3)

gott band góðir leikar, get ekki greint í sundur hvernig hver tónleikur var hvað eða hvernig eða hvar ? keldan eflaust og svíþjóð.. baragott band get ekki sagt meira vegna gleymsku.

Muse

nei ég sá þá ekki í höllinni, heldur á afmælisdaginn minn í köben 16 okt 2003. flottir tónleikar og skemmtilegt planaterium stjörnuþoka og myndir á skjá fyrir aftan. Þetta band sparkar í rass!!.nýji slagarinn Stockholm syndrome sparkaði í rass í bland við aðra gamla og þetta band minnir mig alltaf á bergdísi ofurrokkhund. Brynhildur kom með mér á þetta og hún á þökk fyrir hýsingu í nokkra daga.

Radiohead (2)

sönn íslensk sakamál lagið og fleiri góð lög með Beth Gibbons í fararbroddi. Soldið sérstakt og getur orðið leiðigjarnt en tónleikarinr voru fínir bæði í danmark og í svergie.

Deftones

gaman gaman var soldið mikið drukkin en já það verður einvher að hjálpa mér við þetta. Keldan 2001.

Tool

líka með betri tónleikum sem ég hef farið á. Það var eitthvað í loftinu?. Keldan 2001.

sigurrós

oft oft oft oft oft og oft. Í rvk mosó, keldunni og fleiri stöðum. Fylgdist með þeim frá von og báru útgáfutónleikarnir í íslensku óperunni þegar ágætis byrjun kom út af. Recyclebin var samt með betri diskum sem ég á í safninu mínu. Nenni ekki að segja snillingar, en músíkin er það og þeir vita það. Nenni heldur ekki að plebba niðrá við því það eiga allir rétt á því að upplifa við þessa tónlist. Ekki bara einvherjar kaffidrykkju múmínálfar á sirkus eða í listaháskólanum. Manstu brynhildur þegar ási sagði „oj“ fyrst þegar ég var að spila þetta í fossvoginum. Hann segir ekki oj núna væntanlega því það er bara einfaldlega ekki hægt.

Grandaddy

Granddaddy sá ég á hultsfred hátíðinni í Svíþjóð. Þessir tónleikar eru með betri tónleikum sem ég hef farið á og fór ég strax útí búð og keypti diskinn Sumday með þessari mega mega sérstaki fílingurinn bandi. Hlustið og þið munið sjá ljósið. Á meðan tónleikunum stóð sýndu þeir geðveikt flottar stuttmyndir á risaskjá bakvið sig og þær voru sumar svo kúl að ég gleymi því aldrei. Geðsjúkir tónlista og myndbandagerðar menn þarna á ferðinni og í framtíðinni ætla ég að gerast mega grúppía bandsins. Man ekki hvort þeir spiluðu á roskilde en ef svo er hef ég verið vitlaus í annarlegu ástandi og misst afþví.

Minus

Hef ég séð oftar en ég man.fylgidist með þeim allt frá músíktilraunum til nú. Jesus Christ bobby er besta plata þeirra en halldór laxness fylgir fast á hæla hennar án efa besta rokkband sem island hefur alið af sér með ferskum nýjum pælingum sem fer eins og storm kviða um allt England um þessar mundir. Mér eralveg sama hvað folk talar mikið um „mínus trendið“ þeir eru einfaldlega bara drullu fokking góðir. Lagið sem er mest í spilun hjá mér þessa dagana er long face. Bestu tónleikarnir mínir með þeim er kannski á gauknumað mig minnir. (þar sem þeir og brain police rokkuðu kofann niður!)

jarcrew

þeir félagarnir í Jarcrew komu og spiluðu á Kerrang kvöldi með Mínus.söngvarinn fór út í sal og snerti alla. Mjög furðulegur maður. Ágætistónleikar með þessu ágætis bandi.

Metallica

Ohhhhh hvað get ég sagt? Sá þá á keldunni í fyrra snilld snilld og var ég nú heldur betur feginn að þeir tóku bara 2 ný lög en svo massa mikið af gömlum slögurum og bara góð stemmning og almennur hressleiki með þetta. „and nothing else matters..“

Björk

Sá hana einnig á keldunni 2003. hún syngur drulluvel það verður ekki tekið af henni. Fíla nokkur lög með henni og tók ég vel í þegar þau komu.

annars skil ég hana varla.

Aisian dub foundation

Djöfull var gaman. Sá þá áReykjavík music festival hvað var það ekki 99? Man það ekki svo á keldunni djöfull eru þeir hressir og ég kann að meta tónlistina þeirra! Svo eru þeir svo skemmtilega pólítískir í textagerð og hressilega litlir! Styðja ýmisgóðgerðar skamtök og vilja vekja athygli á ýmsum málefnum og misrétti. Kúl gæjar með attitude.

Cardigans

Man ekki mikið eftir þessum tónleikum satt að segja. Fíla meira bara söngkonuna … töff rödd sko

Coldplay

Átti Heima útí köben þegar þeir spiluðu í höllinni. Sá þá hinsvegar á keldunni að sjálfsögðu hvar annars staðar? Óttalegur vælukjói þessi crhis martin mér finnst hann hinsvegar sætur það finnst Svövu ekki því henni finnst hann vera með svo stórar tennur. Tónleikarinr voru svo sem alltílagi.. badabing!

Doves

Vá hvað ég vanmat þessa hljómsveit fyrir þessa tónleika !!. Á keldunni. Tjekkiðið bara á heimasiðunni þeirra og kaupiði músíkina!..þið eigið ekki eftir að sjá eftir því Ahh þetta melódíska róliyndis rokk! Gerir góðan sunnudag BETRI.

Bloodhound Gang

Hef ekki mikið að segja um þessa let the mother fucker burn ,,,,,,,,Reykjavik mucis festival.

Kent

Diskarnir þeirra eru betri á sænsku. Góðir tónleikar skemmti mér konunglega á reykjavík music festival „om du var här“

electric 6

guð minn góður þetta var ekki skemmtilegt og ekki FYNDIÐ. Með leiðinlegri tónleikum sem ég hef farið á og bara ekki að fíla þetta!

fu Manchu

djöfull var ég drukkin og fokking heimsk að hafa verið þarna en man ekkert eftir þessum tónleikum. Get varla sagt að ég sjái eftir því meira í dag heldur en í gær??..

Iron Maiden

Enn meiri snilld og fannst mér snilld að heyra all the tunes I heard trhoug my brothers door when I was younger, live! Rokk on !

í næstu umfjöllunum mun ég fjalla um tónleika sem ég hef farið á með: hellacopters, interpol, mayhem, mew, turbonegro, zero 7, basementjax, nick cave, beck, manu chao, the hives, modest mouse, royksopp, bonnei princebillie, feeder, wycleaf jean, Fuugees, weezer, my vitriol, audioslave, Steriophonics, Turbonegro, Counting crows, Badly drawn boy, Raised fist, Spörtu, Junior senior, 100 reasons, Placebo, Úlpu, Múm, Jagúar, Jan mayen, Bontleðju, Lokbrá, Kolrössu krókríðandi, Jet black joe, Maus, Brain police, I adapt, Spitsign, Sólstafir, Graveslime, Ensimi, Bibba curver.

fylgisti spennt með tónleika umfjöllun ásu……:)

textagetraun númer 3

júní 8, 2004

þar sem mér dauðleiðist á næturnar í vinnunni þá ákvað ég að smella 3 textagetrauninni og það er nú bara meira en ár síðan ég gerði fyrstu. báðar fyrri hef ég einmitt gert í vinnuni. verðlaunin eru eins og fyrr, 1 kippa bjór og hafa vinningshafarnir verið auður og rán. þar sem rán drekkur ekki bjór hef ég nú splæst í slíkt handa hubbinum á djamminu í staðinn. enn nóg um það.. nefna þarf lag og flytjanda og senda mér svör í tölvupósti á spuunk@hotmail.com

1.You better stop the thing that you doin?

I said, watch out, I ain?t lyin.

2.I spy below the mess

And measure the pressure

3.Don’t you take it so hard now, and please don’t take it so bad

I’ll still be thinking of you, and the times we had baby

4.You know you could’ve been a wonder

Takin’ your circus to the sky

5.and replace the envying

to forget your love

6.Just because you’re paranoid

Don’t mean they’re not after you

7.You said that you’d never been, but all the things that you’ve seen

Are gonna fade away

8.This wave, is a waterslide away from me that takes me further every

day (huh), be cool

9.og allt í einu er ég orðinn voða gamall kall

en hvert fór tíminn, tíminn sem ég gleymdi að líta að mér

10. Cant you see

it´s not everlasting live that we live

og ég endurtek eins og í fyrr getraunum að þetta eru ekki endilega mín uppáhaldslög. þetta er styrkleikastig þrjú… og fer stigvaxandi.

GÓÐA SKEMMTUN!

http://www.ged.is/?view=site&pID=75

http://www.gys.is/gys/defaultfrett.asp?53

jæja

júní 7, 2004

nú dregur heldur betur til tíðinda. hljómsveitin snafu hefur ákveðið að skipta um nafn og heitir nú future future.

takk.

vinna

júní 7, 2004

vúff hvað það er leiðinlegt að vinna á nætunrnar og sofa á daginn. nú verður maður einnig að fara verða duglegur útaf sumarprófunum. oj. en hér með auglýsi ég eftir bassakennara sem getur kennt mér eitthvað í sumar….. spuunk@hotmail.com.

fór á brain police það var gaman doozer var bara brjálæði af sólóum. gott mál. ég er farin að segja nei núna þegar fólk biður mig um að fara á hverfisbarinn eða felix eða pravda újé ása is putting her foot down……. og mér er alveg sama hvað öðrum finnst um það!

jæja nú ætla ég að fara gera eitthvað þessa nóttina…. adios..

korn í gær!

júní 1, 2004

djöfuls suddalega snilldin! hljóðkerfið var MAGNAÐ og þeir voru sóðalega góðir þeir jonathan davis og félagar i korn! we are the ones braking you dooooooownnnnnn SNILLD þegar bassa takturinn lék um höllina i´þessu fárnánlega góða hljóðkerfi þá bara missti ég mig alveg og hjartað sló í takt. svo var maður alvöru rokkari og datt í þvögu og fleira ….. hehe

ALLAVEGA ÁRNÝ EF ÞÚ LEST ÞETTA ÞÁ VERÐURU AÐ HAFA SAMBAND STRAX! þetta erútaf húsnæðiðinu , áttu við ekki að borga í dag?

búin að vera reyna náí þig í marga daga

einnig ef bergdis danmerkur dís les þetta þá hef ég verið að reyna að ná í þig en þú svarar aldrei! díses kræst!

já kæru hálsar svo er gestur bróðir minn búin að krúnuraka sig……. hann er búin að vera með sítt hár síðan hann var 13 ára! vakti mig í morgun þegar það var síminn til mín og ég bara öskraði………… vá hvað þetta var látum okkur segja; „öðruvísi“ hehehe

síja beibes má ekki vera að þessu er að vinna 🙂 kyss

gleymdi sá þetta á síðunni hjá gerði:

A Appealing
S Sexy
A Awkward

Name / Username:

Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com